Motorgames.eu

Motorgames.eu online motorgames for formula1 and motogp

Almennar reglur

Reglur þessar taka yfir skipulag og framkvæmd Liðsstjóraleiks sem Formula.is ( Formula Iceland ehf. ) skipuleggur og nefnist Liðsstjórinn 2011.

Hver skráður þátttakandi í leiknum er eiginn Liðsstjóri og keppnin er í því fólgin að auka (ávaxta) meira en aðrir Liðsstjórar það fjármagn sem þeim er úthlutað í upphafi leiksins.

Leikurinn er bæði í formi keppni milli skráðra þátttakenda og líka þeirra sveita sem þeir kunna að vera meðlimir í.

Viðmið leiksins er árangur ökumanna og liða í öllum Formula 1 mótum ársins 2011 samkvæmt nánari reiknireglum.

Í leiknum er miðað við úrslit Formula 1 móta eins og þau eru birt af FIA sama dag og mótinu lýkur . Þó kærur eða áfrýjanir ökumanna eða liða breyti úrslitum eftirá hefur það ekki afturvirk áhrif á stöðuna í leiknum.

Ef ökumenn forfallast og/eða er vikið frá keppni á tímabilinu, leysir staðgengillinn hann af í leiknum á sömu kjörum og á allan hátt sem fyrri ökumaður væri án þess að það hafi áhrif á lið viðkomandi Liðsstjóra.

Ef ágreiningur rís milli þátttakenda í leiknum og stjórnenda leiksins um framkvæmd eða stigagjöf gildir úrskurður stjórnenda leiksins. Stjórnendur leiksins skulu þó ávallt hlusta á rök þátttakenda og gæta jafnræðis gagnvart öllum þátttakendum í dómum sínum.

Hvert unnið stig í leiknum færir Liðsstjóra ákveðið fjármagn samkvæmt ákveðinni reiknireglu. Stjórnendum leiksins er heimilt á “keppnistímabilinu” að uppfæra reikniregluna enda sé það tilkynnt öllum keppendum með tölvupósti í síðasta lagi næstu keppnishelgi áður en breytingarnar taka gildi.

Liðsstjóri sem ákveður að selja hluta eða allt liðið sitt til kaupa á nýju greiðir ákveðna hlutfallslega þóknun . Stjórnendum leiksins er heimilt að breyta þóknunarhlutfallinu á keppnistímabilinu enda sé það tilkynnt öllum keppendum með tölvupósti í síðasta lagi næstu keppnishelgi áður en breytingarnar taka gildi.

Þess er krafist af þátttakendum að þeir sýni íþróttamannslega hegðun. Ef þátttakendur verða uppvísir að óíþróttamannslegum uppákomum geta stjórnendur meinað viðkomandi frekari þátttöku í leiknum.

Ef þátttakendur geta ekki gengið frá liði sínu áður en gagnagrunnur leiksins lokar fyrir mót er það alfarið á ábyrgð þeirra. Þetta á jafnt við, hvort sem um bilun í Interneti eða netþjóni er að ræða, og/eða vegna yfirálags. (Liðsstjórum er bent á að forðast það mikla álag sem myndast á netþjóni leiksins síðustu klukkustundirnar áður en gagnagrunnurinn lokar á föstudagskvöldi fyrir fyrsta mót)

Ef vegna ófyrirséðra utanaðkomandi aðstæðna stjórnendum og samstarfsaðilum er ekki kleift að ljúka framkvæmd leiksins er þeim frjálst að hætta rekstri leiksins í hluta eða heild. Komi slíkt til, bera stjórnendur leiksins ekki bótaskyldu gagnvart þátttakendum. Komi til slíks, skoðast sá sigurvegari sem best stendur þá að vígi og verðlaunast sem slíkur.

Ef reglur þessar reynast ófullkomnar eða þjóna hagsmunum leiksins ekki að fullu áskilja stjórnendur leiksins sér rétt til að breyta þeim hvenær sem er. Slíkar breytingar skal birta á stjórnborði leiksins.

Til að vera fullgildur þátttakandi í leiknum þarf viðkomandi að skrá sig á innskráningarsíðu leiksins. Til að gerast fullgildur þátttakandi verður viðkomandi að gefa upp nafn, heimilisfang, netfang og síma. Eftir skráningu verður tölvupóstur sendur á netfangið sem gefið var upp. Til að staðfesta þátttöku í leiknum verður að smella á tengilinn í tölvupóstinum. Ef skráð er rangt netfang eða óvirkt er það og afleiðingar þess alfarið á ábyrgð þess skráða.

 

Hver einstaklingur (þátttakandi) getur stofnað ótakmarkaðan fjölda liða, en aðeins eitt lið fyrir hvert netfang og þar með gerst Liðsstjóri þeirra. Hvert lið er algerlega sjálfstætt og óháð öðrum liðum hvers þátttakanda.

 

Einnig geta menn lagt inn á reikning 1145-26-114501 kt. 610606-0320 Formula Iceland ehf og sent svo tölvupóst á formula@formula.is og þá verður opnað fyrir aðganginn.

Til að lið teljist fullgilt og vinni Liðsstjóra sínum stig og rétt til verðlauna ber að greiða árgjald kr 2.500.- fyrir hvert lið/netfang. Innifalið í árgjaldi er virðisaukaskattur. Innifalið í árgjaldinu er Formula leikur á Formula.is

Allir Liðsstjórar í leiknum geta stofnað sveit og boðið í hana vinnufélögum, vinum, fjölskyldu og/eða öðrum að eigin vali. Hverjum Liðsstjóra er að sama skapi heimilt að þiggja boð í eins margar sveitir og hann kýs. Sveitirnar keppa hver við aðra í öllum mótum. Árangur sveitar er mældur í meðalskori 5 efstu manna sveitarinnar í hverju móti. Í lok ársins sigrar sú sveit sem flest stig hefur samanlagt úr öllum mótunum. Hámark 10 lið geta verið í hverri sveit.

Á stjórnsíðu hvers Liðsstjóra eru tenglar til að stofna sveit, bjóða til þátttöku og þiggja þátttökuboð. Stjórn sveita er alfarið á ábyrgð stofnanda hennar, þar með talið spjallborð sveitarinnar.

Hver Liðsstjóri í leiknum fær úthlutað í upphafi ígildi 25 milljarða. Þetta fjármagn notar Liðsstórinn til að kaupa sér lið á “Kauptorgi” leiksins. Fullskipað lið telur 2 ökumenn, bíl, vél og hjálm. Án fullskipaðs liðs vinnur Liðsstjórinn sér ekki inn stig í leiknum.

Þeir þátttakendur sem skrá sig til leiks eftir fyrstu umferð mótsins fá meðalstigafjölda allra umferða sem hafa verið kláruð þegar skráningin á sér stað, en þó ekki fyrir fleiri en 5 fyrstu umferðirnar.( Tæknilega getur nýr Liðsstjóri síðari umferða staðið betur að vígi en þeir Liðsstjórar sem hafa varið fjármunum sínum illa. Við því munu stjórnendur leiksins ekki bregðast á nokkurn hátt. ) Skráning í leikinn verður opin allt keppnistímabilið.

Ef liðsstjóri hefur selt úr liði sínu og ekki lokið við að fullskipa liðið þegar gagnagrunnur leiksins lokar á föstudagskvöldi keppnishelgar er það alfarið á hans ábyrgð.

Liðsstjórum er frjálst að verja hverju sinni eins stórum hluta úthlutaðs fjármagns til kaupa á hlutum sem lið samanstendur úr. (Muna að liðið verður að vera fullskipað). Í hverju móti vinnur liðið Liðsstjóra sínum inn tekjur samkvæmt fyrirfram ákveðinni stigagjöf ( sjá stigakerfi í valmynd á vinstri hluta síðunnar ) byggða á árangri í Formula 1 kappaksturskeppnum. Hvert unnið stig færir Liðsstjóra hálfa milljón króna ( 500.000 kr. ). Sú fjárhæð leggst við höfuðstól Liðsstjórans sem hann getur notað síðar til að breyta liðinu sínu.

Liðsstjórar geta selt liðið sitt að hluta eða öllu leyti hvenær sem er að þeirra vali á meðan gagnagrunnur leiksins er opinn. Eftir að gagnagrunnur leiksins lokar í fyrsta sinni á keppnisári dregst 4% söluþóknun af söluandvirðinu, m.ö.o. þá geta Liðsstjórar selt hluti úr liði sínu án affalls áður en fyrsta umferð hefst.

 

 

Athugasemdafrestur vegna úrslita

Eftir að úrslit í Liðsstjóraleiknum hafa verið birt hefst athugasemdafrestur. Athugasemdafrestur rennur út á miðnætti, daginn eftir að úrslit eru birt, og er því að lágmarki 24 tímar en að hámarki 48 tímar.

Athugasemdir skulu sendar með tölvupósti á: formula@formula.is innan ofangreinds frests. Stjórnendur leiksins hafa heimild til að breyta úrslitum byggt á athugasemdum áður en gagnagrunnur leiksins opnar að nýju.

Stjórnendur leiksins skulu svara athugasemdum efnislega. Úrskurður stjórnenda leiksins er endanlegur og óáfrýjanlegur.

Að athugasemdafresti liðnum skal gagnagrunnur leiksins opna eins fljótt og auðið er. Eftir að gagnagrunnur leiksins opnar verða ekki gerðar leiðréttingar á birtum úrslitum fyrri umferða.

 

Innskráning